Bæn um frið / Ein Bisscen Frieden
Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir
0:00 / 0:00
Bæn um frið / Ein Bisscen Frieden
541 просмотр · 4 года назад
Ingibjörg Margrét Gunnlaugsdóttir
45 подписчиков
541 просмотр · 4 года назад
Léttsveit Reykjavíkur
Vortónleikar í Seljakirkju 28.apríl 2022
Lag: Ralph Siegel
Íslenskur texti: Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir
Stjórnandi: Gísli Magna
Hljómsveitarstjórn og píanó: Tómas Guðni Eggertsson
Trommur: Diddi Guðnason
Bassi: Gunnar Hrafnsson
Gítar: Pétur Valgarð Pétursson
Bæn um frið / Ein Bisscen Frieden
Líttu á blómstrið, er frost bítur að,
á berangri stráið þá næðir um það,
barnanna gullin sem gleðja ei meir,
í grátinum von sem deyr.
Sjáðu á himninum, sól hylja ský.
Hlustaðu´á fuglana þagna á ný.
Taktu við angist sem langt andar að,
lát óma frá hjartastað:
Ég bið um friðsæld, ég bið um gæsku.
Ég bið um mannúð án allrar græsku.
Ég bið um kærleik, ég bið um æsku
sem boðar frið yfir alla jörð.
Ég bið um samkennd, ég bið um drauma.
Ég bið um vonir er undir krauma.
Ég bið um framtíð og sterka strauma
er streyma friði um alla jörð.
Trúðu´að rödd þín, þótt rám hljómi nú,
rati til þeirra sem týnt hafa trú.
Við sameinuð kunnum að senda út þrótt
er sviptir burt dimmri nótt.
Ég bið um friðsæld, ég bið um gæsku.
Ég bið um mannúð án allrar græsku.
Ég bið um kærleik, ég bið um æsku
sem boðar frið yfir alla jörð.
Ég bið um samkennd, ég bið um drauma.
Ég bið um vonir er undir krauma.
Ég bið um framtíð og sterka strauma
er streyma friði um alla jörð.
Syngdu með mér bæn um frið.
Börnum heims ég friðar bið.