Laugarvatn og Múlakot | Rykbað og Lendingarkeppni
Flying Harry
0:00 / 0:00
Laugarvatn og Múlakot | Rykbað og Lendingarkeppni
163 просмотра · 5 дней назад
Flying Harry
341 подписчик
163 просмотра · 5 дней назад
Hér er Verslunarmannahelgin 2026 á flugi.
Byrja aðeins á að fjalla um gátlista áður en við förum í loftið í þessu myndbandi.
Ég lagði af stað frá Hólmsheiði (1.ágúst) og flaug austur á Laugarvatn þar sem ég lenti á túni við Snorrastaði með góðfúslegu leyfi landeiganda. Ég hafði gengið túnið vandlega nokkrum vikum áður til að tryggja að aðstæður væru öruggar. Það sem ég sá hins vegar ekki fyrir var að Vegagerðin hafði skrapað slitlagið af þjóðveginum rétt hjá! Umferðarrykið yfir helgina fauk beint yfir vélina, sem kallaði á heilsdagsþrif og rykhreinsun eftir heimkomu.
Þann 2. ágúst fékk ég bróður minn með í farþegasætið og við flugum yfir í Múlakot á hina árlegu flughátíð. Þar var frábær stemning, fjöldi fólks, pylsur, kaffi og spjall. Ég lét til leiðast og tók þátt í lendingarkeppninni – þar á meðal lendingu án flappsa, sem gekk kannski ekki alveg eins og í sögunni, en ótrúlega gaman engu að síður!
Á mánudeginum 3. ágúst flaug ég svo heim til Reykjavíkur með son minn um borð. Hann hefur verið örlítið smeykur við flugið, en stóð sig eins og hetja í háloftunum og naut útsýnisins alla leið inn á Hólmsheiði.
Myndbandið inniheldur hljóðupptökur úr talstöð og klefa (CVR) samstilltar við GoPro-vélar um borð.
Eitthvað setti ég inn af aukahljóðum til skemmtunar.
Þetta myndband er eingöngu til skemmtunar og til að horfa á þegar ekki er hægt að fljúga vegna veðurs eða annarra leiðinda.
🛩️ Ef þér líkaði myndbandið, endilega smelltu á Like, skildu eftir athugasemd og fylgdu rásinni (Subscribe) til að sjá meira íslenskt flugefni!
Tímasetningar (Timestamps):
0:00 –01:06 Gátlistar og kynning á flugi helgarinnar.
01:06 – 03:45 Reykjavík - Laugarvatn
03:45 - 04:33 Lending á Laugarvatni.
04:33 - 04:51 Brenna í Miðdal og flugvélin safna ryki
04:51 - 05:37 Laugarvatn - Múlakot bræður á flugi.
05:37 - 09:08 Múlakot flughátíð og lendingarkeppni.
09:08 - 09:24 Múlakot - Laugarvatn.
09:24 - 11:24 Laugarvatn - Reykjavík. Feðgar á flugi.
-----------------------------------------------------------------------------------------------------
English: Turn on CC for English subtitles.
Starting off with a quick look at checklists before we take to the skies in this video.
I set off from Hólmsheiði and flew east to Laugarvatn, where I landed on a grass field at Snorrastaðir with the landowner's kind permission. I had walked the entire strip thoroughly a few weeks prior to make sure conditions were safe. What I hadn't anticipated, however, was that the Road Administration had scraped the asphalt off the adjacent main road in the meantime! The traffic dust over the weekend blew straight over the aircraft, calling for a full day of washing and dust removal after getting home.
On August 2nd, my brother joined me in the passenger seat and we flew over to Múlakot for the annual fly-in. There was a fantastic turnout, plenty of people, hot dogs, coffee, and great chats. I decided to give the spot landing competition a shot—including a flapless landing, which didn't go quite as planned, but was heaps of fun nonetheless!
On Monday, August 3rd, I flew back home to Reykjavík with my son onboard. He's been a little nervous about flying, but he did brilliantly up in the air and enjoyed the view all the way back into Hólmsheiði.
The video features cockpit and radio audio (CVR) synced with onboard GoPro footage. I added a few extra sound effects just for fun. This video is purely for entertainment, perfect to watch when the weather or life keeps you grounded.
🛩️ If you enjoyed the video, please hit Like, leave a comment, and Subscribe to the channel for more Icelandic aviation content!
#GeneralAviation #flugzeug #Ísland #Hólmsheiði #Laugarvatn #Múlakot #Flughátíð #Múlakot #Lendingarkeppni
#aviation #Iceland, #bushcraft #bushflying #Iceland