Перейти к содержимому

Kór Fíladelfíu með Hemma Gunn 1989–1990

Kross Inn

0:00 / 0:00

Kór Fíladelfíu með Hemma Gunn 1989–1990

237 просмотров · 7 дней назад
Kross Inn
131 подписчик
237 просмотров · 7 дней назад
Kór Fíladelfíu með Hemma Gunn 1989–1990 27. desember 1989 Í þættinum ræðir Hermann við Þorbjörgu Pálsdóttur frá Álftafirði sem segir frá starfi sínu í Félagi eldri borgara í Kópavogi og bernskujólum sínum fyrir austan. Svanhildur Jakobsdóttir og Anna Mjöll Ólafsdóttir flytja jólasyrpu eftir Ólaf Gauk Þórhallsson, og afmælisbarn dagsins, Bjarni Felixson, kemur í heimsókn og spjallar við Hermann. Edda Borg og hljómsveit flytja lagið Utopía og Hermann kynnir söngvarakeppni þáttarins ásamt ljósmyndakeppninni Bjartasta brosið 1990, þar sem innsendar myndir eru sýndar. Söngflokkur úr Hvítasunnusöfnuðinum, Jólabrot, flytur jólasyrpu og falin myndavél fylgir Margréti Sigurðardóttur sem reynir að fá nágranna til að hjálpa sér við bakstur vegna bilaðrar eldavélar. Björgvin Halldórsson og Ruth Reginalds syngja lagið Þú komst með jólin til mín, og Eyþór Arnalds ræðir við Hermann um hljómsveitina Todmobile, sem flytur lagið Sól, jörð og máni. Bára Magnúsdóttir og Pétur Hannesson sýna Lambada-dans og að lokum kemur Þorvaldur Halldórsson í heimsókn, ræðir m.a. um trúna og sönghópur úr Krossinum í Kópavogi flytur lagið Blessað sé þitt nafn. Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. desember 1989.