Öflugt samstarf í þágu samfélagsins
Veðurstofa Íslands
0:00 / 0:00
Öflugt samstarf í þágu samfélagsins
262 просмотра · 7 мес. назад
Veðurstofa Íslands
746 подписчиков
262 просмотра · 7 мес. назад
Íslendingar þekkja vel hversu mikil áhrif náttúruöflin geta haft á samfélag og umhverfi. Sífellt er verið að leita leiða til að efla vísindalega þekkingu á þessum öflum, styrkja viðbúnaðargetu samfélagsins gagnvart þeim og tryggja að ákvarðanir sem varða öryggi almennings, innviða og mannvirkja byggist á traustum gögnum og rannsóknum. Í þessum verkefnum gegnir hið umfangsmikla og margþætta samstarf Háskóla Íslands og Veðurstofunnar lykilhlutverki, eins og vel kom fram á viðburði sem fór fram í Hátíðasal skólans þann 20. janúar.
Stofnanirnar vinna ekki aðeins saman að vöktun og rannsóknum heldur einnig að menntun sérfræðinga á þessum sviðum og til að tryggja að sú mikla þekking sem orðið hefur til í samstarfinu tapist ekki. Í myndbandinu hér að ofan segja þrír doktorar og doktorsnemar frá Háskóla Íslands, sem starfa hjá Veðurstofunni, frá störfum sínum og þýðingu samstarfs stofnananna fyrir þau og samfélagið allt.
Í myndbandinu koma fram þrír doktorsnemar/doktorar frá Háskóla Íslands sem starfa jafnframt hjá Veðurstofu Íslands:
Milad Kowsari, sérfræðingur í áhættumati vegna jarðskjálftavár hjá Veðurstofu Íslands (PhD í byggingarverkfræði / Civil Engineering).
Tarek A. M. Zaqout, doktor í umhverfisverkfræði og sérfræðingur á sviði vatnafræði og sjálfbærra ofanvatnslausna.
Bryndís Ýr Gísladóttir, doktorsnemi og náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.