#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?
mbl.is
0:00 / 0:00
#149. - Eru dagar Viðreisnar taldir?
143 просмотра · 17 ч назад
mbl.is
34,6 тыс. подписчиков
143 просмотра · 17 ч назад
Hvert er pólitískt erindi Viðreisnar nú þegar þjóðin hefur hafnað Evrópuleiðangri flokksins? Þessari spurningu er hreyft í nýrri bók Björns Bjarnasonar þar sem hann gerir upp þjóðaratkvæðagreiðsluna sem efnt var til 29. ágúst síðastliðinn.
Hann er gestur Spursmála að þessu sinni og ræðir stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu og öðrum samstarfsþjóðum nú þegar ljóst er að Ísland er ekki á leið þangað inn.Pólitískur lífróður Landsvirkjunar
Á sama tíma og Viðreisn sleikir sárin eftir að hafa tapað þjóðaratkvæðagreiðslunni rær Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra pólitískan lífróður vegna málefna Landsvirkjunar. Hann er sakaður um að hafa afvegaleitt sjálft Alþingi með svörum sínum um málefni fyrirtækisins og eins eru uppi spurningar um pólitísk afskipti af þessu verðmætasta fyrirtæki landsins.
Til þess að ræða þetta mál mæta þau á vettvang Álfheiður Ingadóttir fyrrverandi alþingismaður og ráðherra en hún sat í stjórn Landsvirkjunar með hléum í hálfan annan áratug, og Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður og fyrrverandi fjármálaráðherra. Hann þekkir málefni Landsvirkjunar vel af þeim vettvangi.