Перейти к содержимому

#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur

mbl.is

0:00 / 0:00

#147. - Veifa byssum á götum Reykjavíkur

417 просмотров · 6 часов назад
mbl.is
34,6 тыс. подписчиков
417 просмотров · 6 часов назад
Um tuttugu glæpahópar, sem flestir hafa rík tengsl við útlönd eru starfræktir hér. Vopnaútköllum lögreglu hefur fjölgað og tilteknir hópar innflytjenda hika ekki við að veifa skotvopnum á götum úti. Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjón og sviðsstjóra öryggis- og greiningarsviðs Ríkislögreglustjóra í Spursmálum í dag. Í þættinum eru birtar ljósmyndir af hópi innflytjenda sem veifa fjölda skammbyssa á götum úti á höfuðborgarsvæðinu og þær eru bornar undir Karl Steinar.Í fréttum vikunnar er rætt við Illuga Gunnarsson, fyrrverandi formann Ungra vinstri-grænna og Júlíus Viggó Ólafsson, formann Sambands ungra sjálfstæðismanna. Ræða þeir meðal annars innantökurnar í þingflokki Viðreisnar, mótmæla- og vargöldina sem geisar í París og sitthvað fleira.