Перейти к содержимому

#141. - Uppgjörið

mbl.is

0:00 / 0:00

#141. - Uppgjörið

2 646 просмотров · 2 мес. назад
mbl.is
34,6 тыс. подписчиков
2 646 просмотров · 2 мес. назад
Meirihluti kjósenda hafnaði því að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Að baki er löng og ströng barátta þar sem andstæðar fylkingar bárust á banaspjótum. En hver er staðan að átökum loknum? Þessu hyggjast blaðamennirnir Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon svara í aukaþætti Spursmála sem fer í loftið klukkan 14:00. Þau hafa leitt fréttaumfjöllun Morgunblaðsins og mbl.is síðustu mánuði þar sem ljósi hefur verið varpað á kosti og galla mögulegrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Í síðari hluta þáttarins mætir Óli Björn Kárason fyrrverandi ritstjóri og alþingismaður í þáttinn og ræðir nýjustu tíðindi af fjölmiðlamarkaði en í gær var tilkynnt um það að kvöldfréttatími Stöðvar 2 og síðast Sýnar hefði lagt upp laupana eftir 40 ára úthald. Hvað þýðir þetta fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu og af hverju eiga fjölmiðlar jafn erfitt uppdráttar og raun ber vitni?