Перейти к содержимому

Lífs míns ganga! 🎼❤️🎶

Kristinn Ingi Jónsson

0:00 / 0:00

Lífs míns ganga! 🎼❤️🎶

20 просмотров · 7 дн. назад
Kristinn Ingi Jónsson
325 подписчиков
20 просмотров · 7 дн. назад
Lífs míns ganga! ❤️ Jesús, ég vil lofa þig alla daga, Og með þér ganga, um lífsins haga. Í nærveru þinni, ávallt dvelja, Og þína vegu ætíð velja. Þér einum vil ég þjóna, Og að líf mitt, verði þér til sóma. Hvert skref, með þér til himins gengur, Jesús, þú ert minn dýrmætasti fengur! Jesús, þú ert lífs mín saga, Í þínum anda vil ég ganga alla daga. Þú breytir myrkri tíð, í daga bjarta, Þitt frelsi og þinn kærleik, ber ég í hjarta! Í grandvarleika og þekkingu vil ég ganga, Í þolinmæði og mildi, daga langa. Þinn heilagi andi, í lífi mínu ríki, Svo þinn kærleikur, aldrei frá mér víki! Á sannleika þínum, vil ég standa, Og treysta leiðsögn, Heilags Anda. Þitt orð sé ljós á lífs míns vegi, Og leiði mig, á hverjum degi! Með þér vil ég vera, ár og öld, Þú ert mér athvarf, hlíf og skjöld. Þinn kærleika, vil ég öllum færa, Svo þeir fái séð, ljósið þitt skæra! Jesús, þú ert lífs mín saga, Í þínum anda vil ég ganga, alla daga. Þú breytir myrkri tíð, í daga bjarta, Þitt frelsi og þinn kærleik, ber ég í hjarta! Þegar ég hrasa, reisir þú mig við, Þegar ég villist, kemur þú þegar ég bið. Þegar sorgin sækir á hjarta mitt, Jesús leita ég í, skjólið þitt! Í gegnum lífið, ertu mér ávalt við hlið, Í þínum faðmi finn ég, ást og frið. Gefðu að aðrir, fái þig að sjá, Og eignist lífið þér hjá! Lokaviðlag Jesús, þú ert lífs mín saga, Í þínum anda vil ég ganga alla daga. Þú breytir myrkri tíð, í daga bjarta, Þitt frelsi og þinn kærleik, ber ég í hjarta! Með þér vil ég um, eilífðina ganga, Og lofa þig í gleði, daga langa. Þú ert mitt líf, mitt ljós, mín von, Jesús frelsari minn, Guðs elskaði son! Þú, þú, Jesú Engin er sem þú Undir þínum vængjum, vil ég dvelja Engan annan stað, vil ég velja! Þú, þú, Jesú sú Engin er sem þú! Í Jesús heilaga nafni Ég allra synda hafni! Verði ávalt vilji þinn! En ekki minn! Amen! Amen!