Sterkari
KiddiTorfa
0:00 / 0:00
Sterkari
33 просмотра · 7 дней назад
KiddiTorfa
23 подписчика
33 просмотра · 7 дней назад
Ég trúði hverju orði sem þú sagðir,
byggði framtíðina á því,
en traustið hvarf í einni andrá
þinn innri mann þú sýndir mér
en sárast var að næstum trúa því,
halda að sökin væri mín.
En tárin sem ég felldi,
þau falla ekki meir,
því ástin sem þú skildir eftir
er ómerk fyrir mér.
Ég rís upp úr rústunum,
þó rigni af og til.
Ég ber mín sár með stolti og sæmd,
finn hamingjuna senn.
Ég bognaði en stóð upp aftur,
ég brotnaði ekki við þitt þref.
Ég stend hér enn, er sterkari
og stíg mín eigin gæfuskref.
Ég sá þig standa þarna
með hjartað lokað kalt,
og hjartað mitt það hrundi,
því ég hafði gefið allt.
En djúpt í öllum sárum harmi
fann ég þá seiglu sem ég á.
Mundu að sú sem þú braust niður
mun hærra rísa en þú munt ná.
En tárin sem ég felldi,
þau falla ekki meir,
því ástin sem þú skildir eftir
er ómerk fyrir mér.
Ég rís upp úr rústunum,
þó rigni af og til.
Ég ber mín sár með stolti og sæmd,
finn hamingjuna senn.
Ég bognaði en stóð upp aftur,
ég brotnaði ekki við þitt þref.
Ég stend hér enn, er sterkari
og stíg mín eigin gæfuskref.
Það tekur tíma að gróa
og treysta upp á nýtt.
Sum kvöld renna tárin
og kuldinn læðist inn.
En ég vel mig, ég vel lífið,
ég vel að halda ótrauð inn í daginn,
því sú sem ekki brotnar
lifir af, sterkari.
Ég rís upp úr rústunum,
þó rigni af og til.
Ég ber mín sár með stolti og sæmd,
finn hamingjuna senn.
Ég bognaði en stóð upp aftur,
ég brotnaði ekki við þitt þref.
Ég stend hér enn, er sterkari
og stíg mín eigin gæfuskref.
Ég stend hér enn, er sterkari
og stíg mín eigin gæfuskref.