Rúrik heimsækir fjölskyldu í Rúanda
SOS Barnathorpin
0:00 / 0:00
Rúrik heimsækir fjölskyldu í Rúanda
38 просмотров · 4 месяца назад
SOS Barnathorpin
177 подписчиков
38 просмотров · 4 месяца назад
Úr heimildaþættinum Rúrik í Rúanda. Rúrik Gíslason, velgjörðasendiherra SOS, heimsækir fjölskyldu sem hefur brotist út úr sárafátækt og stendur nú á eigin fótum í gegnum verkefni SOS Barnaþorpanna.
Aloys og eiginkona hans, Annonciatha, búa í Nyamiyaga-héraði í Rúanda ásamt sex börnum sínum, fimm sonum og einni dóttur. Þrátt fyrir að eiga gott ræktunarland lifði fjölskylda Aloys í sárri fátækt. Á heimilinu ríkti spenna og ágreiningur, og börnin urðu oft fórnarlömb aðstæðna.
„Þrátt fyrir að við ættum land til ræktunar bjuggum við við mikla fátækt og glímdum við stöðugt hungur og matarskort,“ segir húsbóndinn Aloys. „Börnin okkar gátu ekki sótt skóla, þó að það sé grundvallarréttur þeirra.“