Перейти к содержимому

Stóra tengingin!

Gudni Gunnarsson

0:00 / 0:00

Stóra tengingin!

24 просмотра · 3 дн. назад
Gudni Gunnarsson
186 подписчиков
24 просмотра · 3 дн. назад
Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar. Í dag ætla ég að tala um tengingu – tenginguna sem við þurfum við tilveruna til þess að vera í vitund orkunnar. Þegar við skoðum orðið tenging, þá getum við líka skoðað orðið aftenging. Og þá erum við líka að fjalla um veru og fjarveru. Þegar við aftengjum okkur, einhverra hluta vegna, með viðnámi eða strögli eða hugsunum, þá erum við fjarverandi í hugsununum okkar. Þegar við erum að velta því fyrir okkur hvað vantar, hvað er ekki og þar fram eftir götunum, þá erum við að aftengja okkur okkar eigin tilvist og veru. Þetta er sama ástand og afneitun eða höfnun. Aftenging er alltaf aftenging frá því sem við köllum orkuna, guðljósið, kærleikann, veruna, vitundina – og um leið frá öllu sem að okkur snýr. Alltaf þegar við erum upptekin, sama hvernig það er, upptekin í huganum, upptekin í sögunni, upptekin í þeim raunveruleika sem við höfum talið okkur trú um að sé, þá erum við í sjálfu sér aftengd. Aftengd frá sannleikanum, frá ljósinu, frá vitund. Við erum aftengd okkur og gerum okkur ekki grein fyrir því hvernig þetta virkar, í eðli sínu, einfaldlega.