Перейти к содержимому

Hvað hugsar þú mest um á hverjum degi?

Gudni Gunnarsson

0:00 / 0:00

Hvað hugsar þú mest um á hverjum degi?

42 просмотра · 3 дн. назад
Gudni Gunnarsson
186 подписчиков
42 просмотра · 3 дн. назад
Viljandi verkfæri Allt sem þú veitir athygli vex og dafnar. Í dag ætla ég að fjalla um það hvað við hugsum mest um á hverjum degi. Þetta er alveg merkilegt þegar maður fer að velta því fyrir sér í hvað megnið af hugsununum fer – eða áhyggjur, eða væntingar, eða skortur, eða áhyggjur. Hvað er það sem við hugsum mest um á hverjum degi? Er það það sem við viljum, eða er það það sem við viljum ekki? Það er oft talið að meðalmaður hugsi mest um það sem hann vill ekki. Sumir hugsa líka um það sem þeir vilja og skilja að vilji er verknaður. Til þess að öðlast það sem maður hugsar um, vill skapa, rækta, láta af sér leiða í tilverunni, þá þarf maður að velja að vinna í þágu þess sem maður segist vilja og ætla sér að öðlast eða gefa af sér. En skoðum þetta aftur. Hvað er það sem þú hugsar mest um á hverjum degi? Eru það börnin þín eða atvinnan? Er það húsið sem þú ætlar að byggja, eða ert að byggja, eða ert að byggja? Er það líkaminn, líkamsræktin eða maturinn? Er það neyslan yfir höfuð? Eru það ferðalögin sem þú ert að velta fyrir þér, eða er það eitthvað, eitthvað annað? Er það eitthvað sem þú sérð eftir, sem þú hefur ekki gert, sem þú ætlaðir ekki að gera, sem þú telur að þú hefðir ekki átt að gera?