Af því að hann
Ljósvakinn
0:00 / 0:00
Af því að hann
24 просмотра · 4 дн. назад
Ljósvakinn
10 подписчиков
24 просмотра · 4 дн. назад
@Ljósvakinn
Texti: Bárður Árni Gunnarsson (2024)
Lag: Bárður Árni Gunnarsson (samið með aðstoð gervigreindar)
(1. Jóhannesarbréf 4:19; Alma 38:9)
Af því að hann lýsti upp leið,
þá mín gata hér er greið.
Af því að hann storminn gat stillt,
þá ei ég óttast illt.
Af því að hann veikum styrk gat veitt,
og blindum boðið sýn
og blessað börnin, hvert og eitt,
þá er ást hans heit til mín.
Viðlag:
Ég eilíflega heiðra hann
minn heimsins lausnarann
og með heilögum mun lofa hann.
Af því að hann gaf allt sitt hér,
sem hann gat, já, gaf það mér,
þá ég sé, þá ég finn, þá ég elska kann,
já, þig og hann.
Af því að hann lífið sitt gaf,
þá ég lifað get alltaf.
Af því að hann vinur minn er,
þá ég hans veginn fer.
Af því að hans ljós upp lýsir geim,
þá ég finn hans von og frið
og er hann kemur hér í heim,
þá ég krýp hans fótskör við.
Viðlag:
Ég eilíflega heiðra hann
minn heimsins lausnarann
og með heilögum mun lofa hann.
Af því að hann gaf allt sitt hér,
sem hann gat, já, gaf það mér,
þá ég sé, þá ég finn, þá ég elska kann,
já, þig og hann.