Перейти к содержимому

Hvað sem hérna amar að

Ljósvakinn

0:00 / 0:00

Hvað sem hérna amar að

8 просмотров · 2 дня назад
Ljósvakinn
7 подписчиков
8 просмотров · 2 дня назад
‪@Ljósvakinn‬ Texti: Bárður Árni Gunnarsson (2026) Lag: Bárður Árni Gunnarsson (samið með aðstoð gervigreindar) (Sálmarnir 3:5-6) Ef þín leið er erfið, ei þá óttast neitt. Ef þín veröld bregst og verður óvinveitt, fari hjá þér allt á versta veg og gæfan verði í taumi treg, þá treystu á þín örlög guðdómleg. Viðlag: Hvað sem hérna amar að, ei hugsa neitt um það, Því brátt linnir blindri hríð og hér þá betri verður tíð. Ef þín sorg hér svíður, ei þá misstu von, sýndu trú og traust þitt settu á Guðson, sælt fær snúið öllu’ á besta veg, svo byrðin verði bærileg og blessun frelsarans þér gleðileg. Viðlag: Hvað sem hérna amar að, ei hugsa neitt um það, Því brátt linnir blindri hríð og hér þá betri verður tíð. Ef þitt verk er erfitt, ei þá misstu móð, einn hér Jesús vínlagarþró sína tróð. Hann fær vísað þér á kærleiksveg, svo veröld virðist dásamleg og visku kenning hans þér kunnugleg. Viðlag: Hvað sem hérna amar að, ei hugsa neitt um það, Því brátt linnir blindri hríð og hér þá betri verður tíð.