Перейти к содержимому

Hneigðu þínu höfði

Ljósvakinn

0:00 / 0:00

Hneigðu þínu höfði

5 просмотров · 1 день назад
Ljósvakinn
7 подписчиков
5 просмотров · 1 день назад
‪@Ljósvakinn‬ Texti: Bárður Árni Gunnarsson (2026) Lag: Bárður Árni Gunnarsson (samið með aðstoð gervigreindar) (Matteus 26:26-29; Kenning og sáttmálar 45:3-4; Kenning og sáttmálar 19:16-19) Hneigðu þínu höfði nú, auðmjúklega‘ í hjartans trú. Hugsa‘ um mig á helgri stund, heiðra þennan einkafund. Minnstu kærleika míns hér, minnstu alls er gef ég þér, líkama míns lemstraða, líka blóðsins blessaða. Brauðið blessað berðu‘ að vör, brotið hold og naglaför. Vínið drekktu‘ af djúpri þrá, blóðið dýra‘ er draup mér frá. Minnstu fórnar minnar hér, miskunnar til handa þér, er á krossi kvalinn var, sem kærleikans æðsta svar. Stöðva hjartans strit og sár, ég mun þerra syndatár. Fyrirgef þú öllum fús, festu reglu á þitt hús. Illum löstum láttu af, lausn þér gef og nýtt upphaf. Auðmýkt ávallt temdu þér, þig ég mun þá eigna mér. Hátt í himins hásæti, ég heyri‘ og að þér gæti. Goldið hef ég gjaldið hátt, gjöfina sem þú nú átt. Ver þú hlýðinn, viltu það? vísan átt þá dýrðarstað. Ó, þér bústað búðu‘ í mér, þig þá ætíð blessa hér.