Ragnheiður Gröndal, Magnús Þór Sigmundsson - Húmar að (live, 2019)
ragnaur
0:00 / 0:00
Ragnheiður Gröndal, Magnús Þór Sigmundsson - Húmar að (live, 2019)
155 просмотров · 9 месяцев назад
ragnaur
1,84 тыс. подписчиков
155 просмотров · 9 месяцев назад
Source: https://ord.ruv.is/player/ruv-episode...
A song from the album Vetrarljóð (2004) - • Húmar að
Original description:
Magnús Þór - afmælistónleikar
Upptaka frá 70 ára afmælistónleikum lagahöfundarins og textaskáldsins Magnúsar Þórs Sigmundssonar í Háskólabíói 2018. Á tónleikunum fær hann til liðs við sig mikið af gömlum vinum, þar á meðal Pál Óskar, Ragnheiði Gröndal, Jónas Sig, Þórunni Antoníu, Jóhann Helgason, Sverri Bergmann og Fjallabræður. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.
~~~~~~~~~~~~~
Húmar að
(Song and lyrics: Magnús Þór Sigmundsson)
Dag eftir dag,
dreg ég að mér anda þinn,
anda að mér daglega,
út og inn.
Já, dag eftir dag.
Fljúga um í huga mér,
augnablik er fleyta sér.
Á tímans hafi fley, sem áfram líða.
Nótt eftir nótt,
læðast að mér hljóðlega,
laumast inn í huga minn,
næturljóð.
Já, nótt eftir nótt.
Brjótast um í huga mér,
augnablik er breyta sér,
í bát er siglir um,
á tímans hafi.
Sumarið kemur og fer,
staldrar haustið við,
síðan vetur, desember.
Já, svo kemur vor eftir langa bið,
sem betur fer
birtir í huga mér.
Það húmar að,
hljóðlega ég hverf á braut.
Andi minn svo tímalaus fjarar út
og hverfur í tímans haf.
Hvar svo sem heimurinn endar
og himnarnir taka við.
Mér voru sem barni kenndar
bænir að góðum sið,
um engla og himna hlið, sem opnast.