Vera eins góð og vera má
Ljósvakinn
0:00 / 0:00
Vera eins góð og vera má
17 просмотров · 2 недели назад
Ljósvakinn
7 подписчиков
17 просмотров · 2 недели назад
@Ljósvakinn
Texti: Bárður Árni Gunnarsson (2026)
Lag: Bárður Árni Gunnarsson (samið með aðstoð gervigreindar)
(Kenning og sáttmálar 52:40; 1, Korintubréf 12:12, 25-27)
Að sjá hér heim sem aðrir sjá,
að vera’ eins góð og vera má,
að vera mild við hvern og einn
og varpa aldrei steini’ í neinn,
að vera trú í öllu hér,
einmitt það Guð býður þér.
Að seðja svanga’ og snauða hér,
að hugga þann sem hrjáður er,
að vernda veika’ og styðja þá
og gefa’ af því sem missa má,
að vekja von með verkum hér,
einmitt það Guð býður þér.
Að ganga’ í trú, já, óttalaust,
að efla ást og vinartraust,
að fylla mann hvern af Guðs náð
svo ljós hans lýsi’ upp augnaráð,
að sýna elsku öllum hér,
einmitt það Guð býður þér.